Hlutverk foreldrafélagsins er að styðja skólastarfið, stuðla að velferð nemenda og efla tengsl heimila og skóla. Allir forsjáraðilar nemenda í skólanum teljast félagar í foreldrafélaginu. Stjórn Foreldrafélags Hvaleyrarskóla Stjórn foreldrafélagsins er skipuð einum fulltrúa úr hverjum árgangi, alls tíu manns. Stjórnin er kosin á aðalfundi félagsins sem er haldin byrjun skólaársins. Skólaráð Tveir fulltrúar foreldra eru kosnir í skólaráð. Æskilegt er að annar þeirra sé einnig í stjórn foreldrafélagsins. Stjórn foreldrafélagsins í samráði við skólastjóra auglýsir eftir tilnefningum úr hópi foreldra í skólaráð. Handbók foreldrafélaga grunnskóla Stjórn 2023–2024 Nafn Netfang Hlutverk Lisa Maríudóttir Mahmic [email protected] Formaður Guðvarður Ólafsson [email protected] Varaformaður Margrét Fídes Hauksdóttir Gjaldkeri Dagný Rós Stefánsdóttir [email protected] Ritari Fanney Þóra Magnúsdóttir [email protected] Meðstjórnandi Anna Louise Ásgeirsdóttir Meðstjórnandi Natalie Scholz Meðstjórnandi Harpa Dís Magnúsdóttir Meðstjórnandi Dagný Rós Stefánsdóttir Fulltrúi í skólaráði Lisa Maríudóttir Mahmic Fulltrúi í skólaráði Jakob Jónasson Skoðunarmaður ársreikninga Pétur Ingi Pétursson Skoðunarmaður ársreikninga Foreldrafélag Hvaleyrarskóla [email protected] Lög 1. grein Félagið heitir: Foreldrafélag Hvaleyrarskóla, heimili þess er að Akurholti 1, Hafnarfirði og kennitala félagsins er 521203-4390. 2. grein Félagar eru foreldrar og forsjáraðilar nemenda í Hvaleyrarskóla. 3. grein Markmið félagsins eru: að vera samstarfsvettvangur foreldra sem eiga börn í skólanum að hvetja til virkrar þátttöku foreldra í skólastarfinu og efla tengsl heimila og skóla að efla og tryggja gott samstarf foreldra, nemenda og starfsfólks skólans að efla velferð nemenda með því að styðja heimili og skóla við að skapa nemendum góð uppeldis- og menntunarskilyrði að koma á framfæri sjónarmiðum foreldra varðandi skóla- og uppeldismál að hafa góð tengsl við skólastjórnendur, skólaráð, Foreldraráð Hafnarfjarðar og samtökin Heimili og skóli. að standa vörð um réttindi barna til menntunar og aukins þroska 4. grein Til að ná þessum markmiðum hyggst félagið meðal annars: stuðla að auknu samstarfi foreldra og nemenda gefa út fréttabréf foreldra og hafa upplýsingar aðgengilegar á heimasíðu starfa eftir þeim ákvæðum laga og reglugerða sem Alþingi og menntamálaráðuneytið setja um grunnskóla koma með tillögur að endurbótum og þróunarstarfi í samvinnu við skólayfirvöld kynna sér kennsluhætti og uppeldismarkmið skólans til dæmis með starfi í skólaráði og nefndum halda umræðu- og fræðslufundi um uppeldis- og skólamál fjalla um og koma með tillögur um aðstöðu barna í skólahverfinu styðja eftir megni félags- og tómstundastarf nemenda taka þátt í samstarfi foreldrafélaga og samtökum foreldra skipa bekkjarfulltrúa í hverja bekkjardeild og styðja við starf þeirra taka virkan þátt í nefndum og ráðum bæði innan skólans og utan varðandi afmörkuð viðfangsefni. 5. grein Bekkjarfulltrúar. Starf félagsins byggist á skipulögðu samstarfi foreldra og forsjáraðila nemenda í hverjum bekk. Bekkjarfulltrúar skulu sjá um starf í þágu síns bekkjar í samráði við umsjónarkennara og deildarstjóra. Í hverjum bekk skulu vera 4 bekkjarfulltrúar sem kosnir eru í byrjun skólaárs og eigi síðar en á námsefniskynningarfundi skólans. Vilji bekkjarfulltrúar koma á framfæri einhverjum málum er varðar skólann í heild eða hluta hans, skal þeim komið á framfæri við stjórn foreldrafélagsins, sem annast öll slík mál. Störf bekkjarfulltrúa skulu nánar tilgreind í erindisbréfi til þeirra. 6. grein Deildarformenn. Stjórn foreldrafélagsins skipar deildarformann eða deildarformann úr röðum bekkjarfulltrúa. Best er að hafa deildarformann í hverri deild (yngri deild, miðdeild og unglingadeild). Sé ekki nægu fólki að skipta eru deildarformenn færri en þó í það minnsta einn. Störf deildarformanna skulu nánar skilgreind í erindisbréfi til þeirra og verkefnaskiptingu stjórnar og ráða félagsins. 7. grein Fulltrúaráð. Innan félagsins skal starfa fulltrúaráð skipað öllum bekkjarfulltrúum allra bekkjadeilda, deildarformönnum, fulltrúum foreldra úr skólaráði ásamt stjórn félagsins. Stjórn foreldrafélagsins skal boða til fulltrúaráðsfunda að minnsta kosti tvisvar á skólaárinu, og skal sá fyrsti vera snemma að hausti. Störf fulltrúaráðs skulu nánar skilgreind í verkefnaskiptingu stjórnar og ráða félagsins. 8. grein Skólaráð (samkvæmt 8. gr. grunnskólalaga nr. 91/2008) Á aðalfundi félagsins skal kjósa fulltrúa í skólaráð Hvaleyrarskóla. Skal að minnsta kosti einn fulltrúi foreldra í skólaráði vera úr röðum stjórnarmanna foreldrafélagsins. Fulltrúar í skólaráð eru kosnir til tveggja ára í senn, einn á hverjum aðalfundi. 9. grein Starfsnefndir. Stjórn foreldrafélagsins er heimilt að skipa nefndir er starfa að afmörkuðum verkefnum. Stjórnin semur verkáætlun í samráði við þær. Stjórnarmeðlimir skipta með sér eftirliti með störfum nefnda og deilda fulltrúaráðsins. 10. grein Stjórn. Stjórnina skipa 7 forsjáraðilar nemenda, þar af 2 varamenn og 1 formaður sem kosnir eru á aðalfundi félagsins til eins árs í senn. Formaður er kosinn sérstaklega, að öðru leyti skiptir stjórnin með sér verkum (varaformaður, ritari, gjaldkeri og meðstjórnandi). Æskilegt er að meðlimir stjórnarinnar láti ekki af störfum allir í einu. 11. grein grein: Stjórnarfundir skulu haldnir minnst fimm sinnum á hverju skólaári, þar af tveir fyrir áramót. Stjórn félagsins skal gefa út starfsáætlun í byrjun skólaárs, þar sem tímasettir eru fundir stjórnar, fulltrúaráðs og almennir félagsfundir, svo og önnur verkefni. 12. grein Aðalfundur. Aðalfundur skal haldinn í september ár hvert og skal hann boðaður með viku fyrirvara. Fundurinn er löglegur ef löglega er til hans boðað. Dagskrá aðalfundar er eftirfarandi: Skipan fundarstjóra. Skipan fundarritara. Skýrsla stjórnar síðasta starfsár. Skoðaðir reikningar félagsins lagðir fram. Kosningar formaður félagsins 4 stjórnarmenn 2 varamenn í það minnsta 2 skoðunarmenn til að yfirfara reikninga 2 fulltrúar í skólaráð (kosið til tveggja ára, einn fulltrúi kosinn árlega) lagabreytingar (ef fram hafa komið) árgjald félagsins ákveðið önnur mál 13. grein Reikningsár félagsins er frá 1. september til 31. ágúst. Árgjald til félagsins skal ákveðið á aðalfundi þess ár hvert. Aðeins skal innheimta eitt félagsgjald á hvert heimili. Bekkjarfulltrúum, deildarformönnum, skólaráði eða nefndum á vegum foreldrafélagsins er óheimilt að skuldbinda félagið fjárhagslega eða koma fram fyrir hönd félagsins án samþykkis stjórnar þess. 14. grein Lög þessi öðlast þegar gildi. Tillögur um lagabreytingar skulu tilkynntar í aðalfundarboði og skulu þær lagðar fram skriflega eða á skjá á aðalfundi. Lögum þessum má breyta með einföldum meirihluta atkvæða á aðalfundi.