Nám og kennsla

Frístundaheimilið Holtasel

Frístundaheimilið Holtasel er fyrir börn í 1. til 4. bekk. Þar er boðið upp á fjölbreytt tómstundastarf eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur fyrir nemendur. Starfið byggist á vali, hópastarfi, smiðjum og útiveru. Boðið er upp á síðdegishressingu á miðjum degi.

Skráning í frístund

Foreldrar skrá barnið í frístund á frístundavefnum Völu. Best er að senda inn skráninguna fyrir 15. júní fyrir næsta skólaár, eftir það fara umsóknir á biðlista og eru ekki afgreiddar fyrr en í ágúst. Skráning gildir í eitt skólaár í senn (ágúst–júní). Sjá nánar um frístund á vef Hafnarfjarðar.

Opnunartími

Holtasel opnar eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur og er opið til 17. Holtasel er lokað í vetrarfríi auk þess sem Holtasel lokar tvisvar yfir árið vegna skipulagsdaga.

Frístundaakstur

Börn í 1.–4. bekk fá fylgd í frístundaakstur sem keyrir þau á æfingar hjá íþróttafélögum bæjarins. Skrá þarf barn sérstaklega í frístundaaksturinn í Völu. Aksturinn er ókeypis og komast öll skráð börn að, líka börn sem eru ekki skráð í frístundaheimili.

Sjá nánar um frístundaakstur á vef Hafnarfjarðar.