Nám og kennsla

Félagsmiðstöðin Verið

Verið er félagsmiðstöð fyrir börn og unglinga í 5.–10. bekk í Hvaleyrarskóla og er staðsett í miðrými skólans. Verið leggur áherslu á fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir unglinga ásamt sértæku hópastarfi og tímabundnum verkefnum.

Verið kemur að mörgum viðburðum eins og 220 Rave, sem er haldin í nóvember í samvinnu við aðrar félagsmiðstöðvar, grunnskólahátíðinni, sameiginlegu balli allra grunnskólanna í bænum sem er haldin um miðjan febrúar, nýnemaballi,

árshátíð nemenda, hæfileikakeppni nemenda í miðdeild og fleiri viðburðum.

Dagskrá Versins má finna á Instagrammi Versins.

Opnunartímar

Bekkur Opnun
5. bekkur Mánudaga og miðvikudaga 17:00 - 18:45
6. bekkur Mánudaga og miðvikudaga 17:00 - 18:45
7. bekkur Mán/mið og fyrsta og síðasta föstudag mánaðar 17:00–18:45
8.–10. bekkur Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga 19:30–22

Verið á samfélagsmiðlum