Norðurlandamót grunnskóla var haldið í Helsinki, Finnlandi, dagana 12. – 15. september. Keppt var í tveimur flokkum og var Hvaleyrarskóli fulltrúi Íslands í eldri flokki, 8.- 10. bekkur og Rimaskóli í yngri flokki, 5. – 7. bekkur.

Lið Hvaleyrarskóla var þannig skipað:

1. borð : Tristan Nash Openia

2. borð: Milosz Úlfur Olszewski

3. borð: Kristófer Árni Egilsson

4. borð: Katrín Ósk Tómasdóttir

Varam. Emilía KlaraTómasdóttir

 

Liðstjóri var Ægir Magnússon og með í för var Björn Ívar Karlsson, skólastjóri Skákskóla Íslands, og hafði hann að mestu veg og vanda við skáklegan undirbúning liðsins.

Sveit Hvaleyrarskóla var með yngsta meðalaldurinn í sínum flokki og vitað mál að við ramman reip yrði að draga í viðureignum við hin Norðurlöndin. Þannig fór að Svíþjóð, Danmörk og Noregur röðuðu sér í efstu sætin en Ísland og Finnland voru nokkurn veginn á pari þar á eftir. Liðsmenn Hvaleyrarskóla fengu oft og tíðum ágætar stöður eftir byrjunina en náðu ekki að fylgja því eftir alla leið. Vænlegar stöður urðu fórnarlömb fljótfærni sem hinir efnilegu krakkar úr Hvaleyrarskóla læra af. Björn Ívar skákstjóri fór yfir hverja viðureign með krökkunum, hvað var gott og annað sem betur mátti fara. Mótið var því mjög lærdómsríkt, en ekki síður gaman að fá að spreyta sig gegn krökkum frá hinum Norðurlöndunum.

Rimaskóli lenti í 3. sæti í sínum flokki sem er frábær árangur hjá þeim. Liðstjóri þeirra var Helgi Árnason, sem unnið hefur frábært starf með sínum krökkum í Rimaskóla. Aðstaða á mótsstað var hin besta og allir krakkar úr báðum skólum undu glaðir við sitt.