Ástundun

Nám og kennsla

Góð mæting í skóla er mikilvægur þáttur í farsælli skólagöngu og vellíðan barna og unglinga. Miklar fjarvistir úr skóla geta verið kvíðavaldandi fyrir börn og unglinga og geta valdið skólaforðun og versnandi námsárangri.

Almennar reglur

  •  Ástundun er notað sem samheiti yfir allar fjarvistir í skólastarfi, sem er skipt í tvær tegundir í þessum tillögum. Það eru annars vegar reglur um fjarvistir, seinkomur og brottvikningar úr kennslustundum og hins vegar um leyfi og veikindi.
  • Fjarvistir/seinkomur/brottrekstrar og leyfi/veikindi lúta sitt hvoru viðmiði varðandi eftirfylgni þótt í meginatriðum sé sama skipulag á hvoru tveggja. Það skipulag sem fyrr fer í gang ræður för ef þau eru ekki samhliða.
  • Fylgt er ákveðnu vinnuferli varðandi fjarvistir/seinkomur/brottrekstur og leyfi/veikindi sem skiptist í forstig, viðbragðsstig, hættustig og barnaverndarstig. Tilgangur þessara ferla er að samhæfa viðbrögð við skólasókn í grunnskólum Hafnarfjarðar svo áþekkt ferli mæti nemendum með svipaða skólasókn óháð einstaka grunnskólum. Færist nemandi milli skóla innan Hafnarfjarðar færist skólasókn hans með innan skólaársins, ásamt viðeigandi gögnum sem tengjast skólasóknarferli hans.
  • Sömu skólasóknarform, eitt skólasóknarform fyrir hvert stiganna þriggja, gilda um allar fjarvistir/seinkomur/brottrekstra og leyfi/veikindi í samræmi við viðmið hér aftar.

Fjarvist, seint og brottrekstur

  • Ef nemandi kemur í kennslustund eftir að kennsla hefst hjá kennara fær hann eitt fjarvistarstig og telst vera seinkoma.
  • Ef nemandi mætir ekki í kennslustund eða eftir að 20 mínútur eru liðnar af henni telst það vera fjarvist og gefur tvö fjarvistarstig.
  • Ef að nemanda er vikið úr tíma fær hann þrjú fjarvistarstig og er vísað til skólastjórnanda.
  • Vísi skólastjórnandi nemanda heim úr skólanum út skóladaginn í kjölfar brottrekstrar úr tíma fær nemandi tvö fjarvistarstig til viðbótar, en ekki fyrir aðra tíma sem hann missir af sökum brottvikningarinnar.
  • Skólasóknareinkunn (fjarvistir, seinkomur og brottvísanir úr tíma) er gefin á kvarðanum A, B+, B, C+, C og D. Gefa skal skólasóknareinkunn fyrir alla árganga grunnskólans.

Leyfi og veikindi

  • Stök leyfi/veikindi sem samtals eru sex kennslustundir telst vera einn fjarvistardagur.
  • Í stökum tilvikum er ákveðið að ferli fer ekki í gang sökum þess að eðlileg skýring er fyrir hendi og kennari hefur upplýsingar frá forsjáraðilum, t.d. vegna dvalar á spítala.
  • Tilkynna þarf leyfi í 3 daga eða lengur gegnum form á vef skólans. Leyfistilkynningarform er bæði hægt að útfylla rafrænt eða á pappír. Leyfi í tvo daga eða minna skal skrá í Mentor af forráðamönnum eða senda tölvupóst/hringja í skóla.

Skólasóknareinkunn

  • Skólasóknareinkunn gildir um fjarvistir, seinkomur og brottrekstra úr kennslustundum.
  • Skólasókn hefst með einkunnina A og lækkar síðan allan veturinn eftir því sem fjarvistir aukast. Ein skólasóknareinkunn gildir fyrir allt skólaárið.
  • Möguleiki er að hækka skólasóknareinkunn upp um fjögur fjarvistarstig á viku með óaðfinnanlegri skólasókn í heila viku. Í samningi við nemanda (skólasóknarform-viðbragðsstig og skólasóknarform-hættustig) er þetta viðfangsefni til umræðu og hvatningar. Ekki er hægt að hækka hærra en í B yfir skólaárið og hefst ekki fyrr en nemandi er kominn í C+ í einkunn eða lægra.