Almennar skólareglur Mikilvægt er að nemendur hafi ekki einungis skyldur gagnvart náminu sínu heldur líka framkomu sinni og hegðun í skóla. Nemendur bera ábyrgð á framkomu sinni og samskiptum með hliðsjón af aldri og þroska. Nemendum ber að hlíta fyrirmælum kennara og starfsfólks grunnskóla í öllu því sem skólann varðar, fara eftir skólareglum og fylgja almennum umgengnireglum í samskiptum við starfsfólk og skólasystkin. Skólareglur Bjóðum góðan dag í upphafi dags. Notum innirödd og falleg orð í samskiptum. Verum stundvís. Förum eftir fyrirmælum. Leiðum óæskilega hegðun hjá okkur. Höfum hendur og fætur hjá okkur. Sýnum ábyrgð við notkun síma og annarra snjalltækja. Skiljum óleyfilega hluti eftir heima. Göngum snyrtilega um. Verum jákvæð og kurteis. SMT-skólareglur Hvaleyrarskóla Reglur um ástundun Síma- og tækjanotkun Skólareglur gilda líka fyrir samskipti nemenda gegnum tölvur og umgengni um tækin. Slökkt á að vera á síma og öðrum tækjum í kennslustundum og þau ekki sýnileg nema með sérstöku leyfi kennara. Allar mynd- og hljóðupptökur í skólanum eru óheimilar nema með sérstöku leyfi kennara. Nemendur eru hvattir til að vera ábyrgir á netinu og hafa í huga netorðin 5. Reiðhjól Nemendur mega mæta á hjóli í skólann, þó verða nemendur í 1. bekk að vera í fylgd fullorðins. Það er á ábyrgð foreldra að senda börnin sín í skólann á hjóli. Nemendur bera sjálfir ábyrgð á hjólum sínum. Leggja á reiðhjólum í hjólagrindur eða við grindverk og læsa. Notkun reiðhjóla er bönnuð á skólatíma, líka í frímínútum. Nemendur í 5.–10. bekk mega nota reiðhjól til að fara til og frá Sundhöllinni. Nemendur eiga að vera með hjálm. Hlaupahjól, hjólabretti og línuskautar Hlaupahjól eru geymd í læstri geymslu í skólanum. Merkja þarf hlaupahjólin. Nemendur bera sjálfir ábyrgð á hjólum, hjólabrettum og línuskautum sínum. Notkun hlaupahjóla, hjólabretta og línu- og hjólaskauta er almennt ekki leyfð á skólalóðinni á skólatíma. Nemendur í 5.–10. bekk mega vera á hlaupahjólum, hjólabrettum og línuskautum á brettavellinum.