Skólasetningin föstudaginn 23. ágúst á sal skólans sem hér segir:

  • Kl. 8:30 – 2., 3. og 4. bekkur
  • Kl. 9:45 – 5., 6. og 7. bekkur
  • Kl. 11:00 – 8., 9. og 10. bekkur
  • Nemendur í 1. bekk verða boðaðir í viðtöl hjá umsjónarkennara þennan dag.

Skólasetningin hefst á sal skólans þar sem skólastjóri og deildarstjórar ræða við nemendur og foreldra. Að því loknu fara nemendur með umsjónarkennara í sína heimastofu þar sem farið er yfir skipulag vetrarins. Foreldrar/forsjáraðilar eru hjartanlega velkomnir með nemendum. Hlökkum til að sjá ykkur.