Kæru foreldrar barna verðandi nemenda í 1. bekk í Hvaleyrarskóla.

Miðvikudaginn  3. júní  kl. 9:00 til 11:00 verður vorskóli í Hvaleyrarskóla.  Koma á með börnin gegnum aðalinngang skólans.

Markmiðið með vorskólanum er að börnin fái að hittast, kynnast hvert öðru og staðháttum áður en skólinn byrjar í haust.

Dagskráin er sem hér segir: Foreldrar koma með börnin sín í Hvaleyrarskóla.

9:00               Börnin mæta og kynna sig

9:15                Verkefnavinna

9:40                Frímínútur

10:00             Nestistími og saga lesin fyrir börnin. Börnin komi með nesti að heiman og vatnsbrúsa.

10:20             Stöðvavinna

10:40             Stöðvavinna

11:00             Börnin eru sótt – starfsfólk leikskóla koma og sækja börnin

 

Foreldrar koma með börnin í Hvaleyrarskóla kl. 9:00 en starfsfólk leikskólana kemur og sækir þau kl. 11:00.

Bestu kveðjur,

Skólastjórnendur og kennarar