Farsæld barna Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna tóku gildi þann 1. janúar 2022. Meginmarkmið laganna er að skapa umgjörð sem stuðlar að því að börn og foreldrar, sem á þurfa að halda, hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana. Í lögunum kemur fram að börn undir 18 ára aldri og fjölskyldur þeirra skuli hafa aðgang að tengilið þjónustu í þágu farsældar barns eftir því sem þörf krefur. Hlutverk tengiliðar er: að hafa hagsmuni barns að leiðarljósi að rækja hlutverk sitt í samstarfi og samráði við foreldra og barn að veita upplýsingar um þjónustu í þágu farsældar barns að aðstoða við að tryggja aðgang að frummati á þörfum barns – eyðublað frá BOFS að skipuleggja og fylgja eftir samþættingu fyrsta stigs þjónustu í þágu farsældar barns að koma upplýsingum til sveitarfélags um þörf fyrir tilnefningu málstjóra að taka þátt í starfi stuðningsteymis eftir því sem við á Þegar barn er við nám í leik-, grunn-, eða framhaldsskóla er tengiliður þjónustu í þágu farsældar barns starfsmaður skólans þar sem barnið er við nám eða leik. Lesa meira um farsæld barna Tengiliðir farsældar Sigrún Einarsdóttir – deildarstjóri sérverkefna [email protected] Úrræðalisti Hvaleyrarskóla Úrræðalisti Hvaleyrarskóla Nemendaverndarráð Hlutverk nemendaverndarráðs er að taka við öllum erindum, bæði frá starfsfólki og foreldrum, um stuðningsþjónustu skólans og koma þeim í farveg sem leiðir til lausna á þeim. Foreldrar sem telja að barn þeirra þurfi á stuðningi að halda geta haft samband við umsjónarkennara barns eða deildarstjóra sérkennslu, Berglind Ósk Kristjánsdóttir. Foreldrum er alltaf tilkynnt ef málum barna þeirra er vísað til ráðsins. Ráðið heldur fundi vikulega. Í ráðinu sitja: Skólastjórnandi Námsráðgjafi Hjúkrunarfræðingur Sálfræðingur Deildarstjórar Umsjónarkennarar og aðrir eru boðaðir til fundar eftir þörfum. Ráðið er bundið þagnarskyldu um einkamál nemenda, að undanskildum atvikum sem ber að tilkynna samkvæmt lögum. Reglugerð um sérfræðiþjónustu sveitarfélaga Reglugerð um nemendur með sérþarfir Heilsugæsla Skólahjúkrunarfræðingur: Eva Þórey Sigurðardóttir [email protected] Viðverutími Þriðjudaga 08:00-12:00 Miðvikudaga 08:00-15:00 Fimmtudaga 08:00-15:00 Heilsuvernd skólabarna Heilsuvernd skólabarna er hluti af heilsugæslunni og framhald af ung- og smábarnavernd. Markmiðið er að efla heilbrigði nemenda og stuðla að vellíðan þeirra. Starfsfólk heilsuverndar skólabarna vinnur í náinni samvinnu við foreldra, skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma að málefnum nemenda með velferð þeirra að leiðarljósi. Farið er með allar upplýsingar sem trúnaðarmál. Þjónusta heilsuverndar skólabarna er skráð í rafræna sjúkraskrá heilsugæslunnar. Helstu áherslur í heilsuvernd skólabarna eru forvarnir, fræðsla, skimanir og bólusetningar. Unnið er samkvæmt leiðbeiningum Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu og Embættis landlæknis um heilsuvernd grunnskólabarna. Heilbrigðisfræðsla Skipulögð heilbrigðisfræðsla er veitt í öllum árgöngum og er áherslan á að hvetja til heilbrigðra lífshátta. Eftir fræðslu fá foreldrar upplýsingar í tölvupósti um fræðsluna. Þá gefst þeim kostur á að ræða við börnin um það sem þau lærðu og hvernig hægt er að nýta það í daglegu lífi. Markmið hverrar fræðslu eftir árgöngum er hægt að sjá á Heilsuvera.is Nánar um heilsuvernd nemenda Nánar um heilbrigðisfræðslu á Heilsuveru 1. bekkur „Líkaminn minn“ – forvörn gegn kynferðislegu ofbeldi og hjálmanotkun. 2. bekkur Tilfinningar. 3. bekkur Verkefnabók um 6H heilsunnar (Hamingja, Hollusta, Hreinlæti, Hreyfing, Hvíld). 4. bekkur Kvíði og slysavarnir. 5. bekkur Samskipti. 6. bekkur Kynþroski og endurlífgun. 7. bekkur Bólusetningar – stutt fræðsla um þær bólusetningar sem þau fá í 7. bekk. 8. bekkur Líkamsímynd, hugrekki og endurlífgun. 9. bekkur Kynheilbrigði og bólusetning. 10. bekkur Geðheilbrigði, endurlífgun og ábyrgð á eigin heilsu. Skimanir Skimað er fyrir ákveðnum heilbrigðisvandamálum og eru skimanir framkvæmdar í 1., 4., 7. og 9. bekk. Þær felast í mælingu á hæð, þyngd og sjónskerpu. Nemendur í öðrum árgöngum eru skimaðir eftir þörfum. Ef frávik reynist í skimun er ávallt haft samband við forráðamann. Heilsueflandi viðtöl um lífsvenjur og líðan Þegar skimanir fara fram í 1. 4. 7. og 9. bekk ræðir skólahjúkrunarfræðingur við nemendur um líðan og lífsvenjur. Markmið viðtalanna er að styrkja vitund nemenda um eigið heilbrigði og líðan. Einnig að geta gripið til úrræða ef vart verður við vanlíðan eða áhyggjur. Bólusetningar Bólusetningum er ætlað að verja einstaklinginn gegn alvarlegum smitsjúkdómum. Í 7. bekk er bólusett við mislingum, hettusótt og rauðum hundum (ein sprauta), og HPV (Human papilloma veirum) sem geta valdið leghálskrabbameini. HPV bólusetning er gefin tvisvar með 6 mánaða millibili. Í 9. bekk er bólusett við barnaveiki, stífkrampa, kíghósta og mænusótt (ein sprauta). Áður en kemur að bólusetningu er sendur tölvupóstur til foreldra með upplýsingum um tímasetningu. Allar bólusetningar eru skráðar rafrænt í sjúkraskrá en hægt er að fá bólusetninguna skráða í bólusetningarskírteini fyrir þá sem vilja. Hafið samband við skólahjúkrunarfræðing ef: Nánari upplýsinga er óskað Talið er að barn sé ekki að fullu bólusett Óskað er eftir því að barn sé ekki bólusett Það er á ábyrgð foreldra að láta bólusetja börn sín. Hagnýtar upplýsingar Veikindi og slys Ef óhapp eða slys verður á skólatíma sér starfsfólk skólans um fyrstu hjálp. Þurfi nemandi að fara á heilsugæsluna eða slysadeild skulu foreldrar fara með barninu. Því er mikilvægt að skólinn hafi öll símanúmer þar sem hægt er að ná í þá á skólatíma barnsins. Ekki er ætlast til að óhöppum sem gerast utan skólatíma sé sinnt af heilsuvernd skólabarna. Langveik börn Mikilvægt er að skólahjúkrunarfræðingur viti af börnum sem eru með fötlun eða langvinnan og/eða alvarlegan sjúkdóm, s.s. sykursýki, ofnæmi, flogaveiki, blæðingarsjúkdóma eða aðra alvarlega sjúkdóma. Hlutverk skólahjúkrunarfræðingsins er að skapa þessum börnum viðeigandi aðstæður og umönnun í skólanum í samvinnu við foreldra og starfsfólk skólans. Lyfjagjafir – Samkvæmt tilmælum landlæknis um lyfjagjafir í grunnskólum eru sérstakar vinnureglur varðandi lyfjagjafir til nemenda á skólatíma Höfuðlús Höfuðlús birtist reglulega í skólum landsins og er mikilvægt að foreldrar kembi hár barna sinna reglulega yfir skólaárið. Rétt er að láta skólann vita ef lús finnst í hári barns og skólahjúkrunarfræðingur getur leiðbeint varðandi lúsasmit. Sérkennsla Deildarstjóri stoðþjónustu: Berglind Ósk Kristjánsdóttir Viðtalstímar eru eftir samkomulagi 565 0200 [email protected] Sérkennsla er ýmist innan eða utan bekkjar og annað hvort stuðningur við nemanda eða nemendahóp. Stuðningsfulltrúar aðstoða umsjónarkennara samkvæmt mati deildarstjóra sérkennslu. Ef vikið er verulega frá námsáætlun árgangsins er einstaklingsáætlun unnin í samvinnu við foreldra sem er metin reglulega. Samstarf sérkennara við foreldra er mikilvægt og veita sérkennarar foreldrum, kennurum og stuðningsfulltrúum ráðgjöf við val á námsefni og þjálfun. Umsjónarkennarar sækja um sérkennslu á vorin til deildarstjóra stuðningsþjónustu. Nemendum er forgangsraðað eftir stöðu þeirra í námi og öðrum forsendum og tekið mið af greiningargögnum ef til eru. Forgangsröðun er endurskoðuð á hverri önn og oftar ef þörf er á. Yngsta stig Áhersla á málörvun og lestur. Í einstaka tilfellum er veitt sérkennsla í stærðfræði í 2. og 3. bekk. Miðstig Sérkennsla er aðallega í íslensku og stærðfræði. Kennslan fer oftast fram í litlum hópum eða námskeiðum (6–8 vikur). Unglingastig Sérkennsla í íslensku og stærðfræði. Nemendur fara ýmist út úr bekk í lítinn hóp eða fá aðstoð inn í bekk. Tilfinningalegir erfiðleikar eða hegðunarvandi Nemendur með tilfinningalega erfiðleika eða hegðunarvanda geta fengið óhefðbundinn stuðning sem tekur mið af þörfum þeirra. Til dæmis: Auknar verk- eða listgreinar Sértæka vinnu í félagsfærni og sjálfstyrkingu Hópefli og félagsfærniþjálfun í 4.- 6. bekk Kynjaskipta hópa í samstarfi við Verið Skimun og eftirlit Þegar verið er að ákveða hvort nemendur fari í sérkennslu eru niðurstöður úr skimunum og prófum tengdum þeim höfð til hliðsjónar. Nemendur með fatlanir og alvarleg frávik eru fyrir utan viðmiðin. Tekið er tillit til annarra aðstæðna eins og bekkjarstærðar og annars stuðnings sem er veittur. Umsjónarkennarar eða sérkennarar leggja prófin fyrir. Íslenska sem annað tungumál Nemendur með íslensku sem annað tungumál fá íslenskukennslu á meðan þess er þörf. Þeir geta fengið undanþágu frá skyldunámi í dönsku og fengið í staðinn aukinn stuðning í íslensku, öðrum námsgreinum eða fengið metið nám á eigin tungumáli. Móttökuáætlun tvítyngdra nemenda Bjarg - móttökudeild Í Hvaleyrarskóla er starfrækt móttökudeild fyrir nemendur í leit að alþjóðlegri vernd. Markmikið með deildinni er að taka vel á móti börnum sem koma úr erfiðum aðstæðum og hafa sum hver verið á flótta allt sitt líf. Skólaganga þeirra er oft mjög brotin og mörg hafa ekki verið í skóla lengi. Lögð er áhersla á að hjálpa börnunum að aðlagast íslensku skólakerfi hægt en örugglega þannig að skólaganga þeirra verði sem farsælust. Námsgreinar sem lögð er áhersla á: íslenska stærðfræði enska lífsleikni íþróttir list- og verkgreinar Lögð er áhersla á að styðja við foreldra nemendanna og aðstoða þá við að setja sig inn í íslenskt skólakerfi. Foreldrar eru hvattir til að koma í skólann og fylgjast með börnum sínum í leik og starfi. Nemendur eiga sína heimabekki og fara með jafnöldrum í skólaíþróttir, list- og verkgreinar. Þannig er stuðlað að því að þau einangrist ekki í Bjargi heldur eignist vini og læri smám saman að vera nemendur í íslenskum skóla. Þannig er unnið í anda skóla án aðgreiningar því stefnan er að nemendurnir fari meira inn í bekki eftir því sem kjarkur og geta eykst. Skólanámskrá Bjargs Sálfræðiþjónusta Sálfræðingur starfar í öllum grunnskólum bæjarins. Sálfræðingur skólans sinnir greiningu, fræðslu, stuðningi og ráðgjöf en ekki meðferð. Tilvísanir til sálfræðings berast í gegnum nemendaverndarráð eða brúarteymi grunnskólans. Samþykki foreldra verður alltaf að liggja fyrir. Tilefni beiðna geta verið margvísleg en áhersla er lögð á snemmtækt mat og greiningu á stöðu nemanda vegna náms, hegðunar og sálrænna erfiðleika. Sálfræðingur Hvaleyrarskóla er Ingibjörg Markúsdóttir, [email protected]. Talmeinaþjónusta Börn sem glíma við frávik í máli eða tali eiga rétt á greiningu talmeinafræðings ásamt sérkennslu og stuðningi við nám í grunnskóla. Talmeinafræðingur veitir einnig ráðgjöf til starfsfólks grunnskóla. Foreldrar geta óskað eftir greiningu og ráðgjöf talmeinafræðings, í öllum tilvikum þarf skriflegt samþykki foreldra að liggja fyrir áður en greining fer fram.