Innra mat Í Hvaleyrarskóla er unnið að margvíslegu innra mati í tengslum við daglegt skólastarf. Skólapúlsinn Stærsta formlega könnunin sem unnin er í innra mati er Skólapúlsinn, sem er kerfi sem allir grunnskólar í Hafnarfirði styðjast við. Á hverju ári eru rafrænar kannanir lagðar fyrir úrtak nemenda, foreldra og starfsfólks. Niðurstöður eru kynntar í lok hvers skólaárs og skólinn vinnur í kjölfarið að umbótaverkefnum. Könnun er lögð fyrir: 40 nemendur í 6.–10. bekk á mánuði frá september til maí. úrtak úr hópi foreldra í febrúar. allt starfsfólk skólans, með áherslu á kennara, í mars. Sjá nánar í skólanámskrá. Umbótateymi Við Hvaleyrarskóla er starfandi sérstakt umbótateymi sem leiðir innra mat skólans. Í umbótateyminu sitja: Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri. Vala Stefánsdóttir, aðstoðarskólastjóri. Steinar Ó. Stephensen, deildarstjóri yngstu- og miðdeildar. Nedelina Ivanova, deildarstjóri stoðþjónustu. Margrét Heiða Magnúsdóttir, deildarstjóri tómstundamiðstöðvar. Vigfús Hallgrímsson, þróunarfulltrúi Skólaskrifstofu. Með umbótateyminu starfar þróunarfulltrúi grunnskóla, Vigfús Hallgrímsson. Hlutverk hans er að veita ráðgjöf og vera leiðbeinandi í þeirri vinnu sem teymið leggur fyrir. Skólastjóri er formlegur ábyrgðaraðili teymisins og tengiliður við skólaráð. Deildarstjórar fylgja eftir umbótavinnu innan sinnar deildar. Skólastjóri heldur utan um starf teymisins (ritar fundargerðir, boðar til fundar og gerir dagskrá). Teymið gerir starfsáætlun fyrir skólaárið og skiptir með sér verkum. Hlutverk umbótateymis er að: Vinna starfsáætlun skólans. Vinna umbótaáætlun (sem birtist í starfsáætlun Hvaleyrarskóla). Fylgja eftir umbótaáætlun og umbótastarfi innan skólans. Greina niðurstöður kannanna (Skólapúls, vinnustaðagreining, samræmd próf og fleira) og kynna fyrir hagsmunaaðilum. Sjá nánar í starfsáætlun Hvaleyrarskóla. Ytra mat Í Hafnarfirði sinnir sveitarfélagið sínum þætti í ytra mati með því að fylgja eftir að grunnskólar sinni sínum þætti í innra mati, leggur til matstækið Skólapúlsinn og vinnur sérstaklega úr þeim upplýsingum með skýrslugjöf eins og á við á hverjum tíma (Skólavogin). Skrifstofa mennta- og lýðheilsusviðs Hafnarfjarðar fylgir eftir að skólarnir sinni áætlanagerð og umbótaverkefnum. Menntamálastofnun hefur umsjón með ytra mati á grunnskólum fyrir hönd mennta- og barnamálaráðuneytis. Á hverju ári fara 10 grunnskólar á landinu í ytra mat. Þá er starfsemi skólanna metin með hliðsjón af gildandi viðmiðum samkvæmt lögum, reglugerðum og aðalnámskrá. Matið byggir á fyrirliggjandi gögnum um starfsemi skólans, vettvangsheimsóknum matsaðila og viðtölum við nemendur, starfsfólk skóla og foreldra. Hvaleyrarskóli hefur þrisvar farið í ytra mat hjá Menntamálaráðuneytinu, árin 2001, 2010 og 2019. Metnir voru 4 þættir: Stjórnun, nám og kennsla, innra mat og teymisvinna. Í öll skiptin fékk skólinn fullnægjandi einkunn fyrir matsaðferðir og framkvæmd. Einnig hefur skólinn fengið viðurkenningu Fræðsluráðs Hafnarfjarðar fyrir athyglisverða innleiðingu árangursstjórnunar og sjálfsmats skólaárið 2008–2009. Kynning á ytra mati 2020 Umbótaáætlun 2020